Ferill 401. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 813 — 401. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um lánshæfismatsfyrirtæki.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (ÓBK, LA, ÁslS, BN, JSV, VilB).
1. Við 2. gr.
a. Á eftir dagsetningunni „10. febrúar 2012“ í 1. mgr. komi: sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 21. júní 2012, bls. 31.
b. Á eftir dagsetningunni „30. september 2016“ í 1. mgr. komi: sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 13 frá 23. febrúar 2017, bls. 42–51.
c. 2. mgr. falli brott.
2. Við 3. gr.
a. 3. mgr. orðist svo:
Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með því að farið sé að 1. mgr. 4. gr., 5. gr. a og 8. gr. b – 8. gr. d reglugerðar (EB) nr. 1060/2009. Fjármálaeftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem brýtur gegn ákvæðunum og stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra.
b. Í stað orðanna „lagðar eru“ í 1. og 2. málsl. 4. mgr. komi: Fjármálaeftirlitið leggur.
c. Í stað orðanna „m.a. tekið“ í 5. mgr. komi: Fjármálaeftirlitið taka.
d. Á eftir orðunum „mánaðar frá“ í 6. mgr. komi: því að viðkomandi er tilkynnt um.
e. Á undan orðunum „heimilt að“ í 8. mgr. komi: Fjármálaeftirlitinu.
3. Við 4. gr.
a. Á eftir orðunum „Eftirlitsstofnunar EFTA“ í 1. mgr. komi: sbr. 1. mgr. 23. gr. c og 23. gr. d reglugerðar (EB) nr. 1060/2009.
b. Fyrri málsliður 2. mgr. orðist svo: Til þeirra rannsóknaraðgerða sem kveðið er á um í a–c-lið og e-lið 1. mgr. 23. gr. c og 23. gr. d reglugerðar (EB) nr. 1060/2009 þarf heimild dómara nema samþykki þess aðila sem rannsóknaraðgerðirnar beinast að liggi fyrir.
4. 5. gr. orðist svo ásamt fyrirsögn:
Upplýsingagjöf.
5. 6. gr. falli brott.
6. Í stað orðanna „reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1060/2009 um lánshæfismatsfyrirtæki“ í 8. gr. komi: reglugerðar (EB) nr. 1060/2009.
7. Við 9. gr.
a. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að setja reglur um nánari útfærslu laga þessara sem byggjast á tæknilegum eftirlitsstöðlum sem Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin mótar og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkir á grundvelli reglugerðar (EB) nr. 1060/2009.
b. Fyrirsögn greinarinnar verði: Stjórnvaldsfyrirmæli.